Jájájá.... Hver er vaknaður? Ég.... Og væntanlega þú sem ert að
lesa þetta.. Ég er annars búinn að eiga fína helgi... Á
föstudaginn, nei, ég ætla ekki að fara yfir það aftur.. Í gær var
ég að vinna frá 8-15 og fór þá í afmæli til kærasta systur minnar.
Þar fékk ég aspas-pæ(pie) og einhverja lengju sem Jói Fel hafði
bakað..

Eftir það fór ég á fótboltaæfingu hjá KV
og setti tvö mörk, minnkaði muninn í 6-7 og jafnaði síðan 7-7.. Svo
skoraði Ómar, bróðir Gvara, sigurmarkið með því að vippa yfir
Stebba Kalla. Þvílík snilld... En burt séð frá því þá átti ég mjög
slakan dag í vörninni en brá mér í sóknina þarna tvisvar og setti
tvö... Mjög gott... Eftir æfingu kom ég heim og fékk Gúllas í
matinn sem mér finnst venjulega ógeðslegt en þetta var bara besta
Gúllas sem ég hef fengið.. Eftir matinn bloggaði ég..

Eftir
langt blogg skellti ég mér til Ödda þar sem hann og Eifi voru að fá
sér í aðra tánna. Jafnvel báðar.. Ég heimtaði að fá að horfa á
Fitness... Reyndar skipti ég bara þegar þeir fóru báðir að tefla..
við páfann... Við horfðum aðeins á Fitness og ég get svo svarið
það, stelpurnar í Fitness eru ekki sexy.. Sumar þarna litu út eins
og þær hefðu brunnið í ofni og svo voru þær með engar
mjaðmir.. Ég skil ekki hvað fær þær til að fara í
þetta... Það er ekkert jafn flott að sjá vel þjálfaða
stelpu en það eru takmörk fyrir öllu... Þessar stelpur voru OF
þjálfaðar og allvega heilluðu þær mig ekki..Ef einhver af þeim
eru að lesa þetta (sem ég stórefa) þá mega þær samt ekki taka
þessu persónulega... Þessi keppni er dæmd til að fá
gagnrýni... Það fór samt köllunum mun betur að vera svona
massaðir... Ég bara gat ekki setið kjurr....

Við skulum ekkert fara nánar í þetta... En ég
skaust aðeins í partý Arnaldar (Semi KV-partý). Það var mikil
stemmning þar.. Ég var samt ekki lengi þar og skellti mér
síðan í partý til Unu... Partýið hjá Unu var gott,
bara eðalfólkið úr 3. bekk frá því í fyrra... Alltaf gaman að hitta
þau og spjalla við þau.. Eftir þetta fór ég á Prontó og fékk mér
pizzu... Gott kvöld og allir sáttir.. Nú er ég að stelast undan
lærdómi sem er ekki skrýtið.. Ef ég er háður einhverju, þá er það
tölva... Tölva er eins og fíkniefni.. Getur farið illa með mann....
En ég verð að segja eitt svona í lokin.... Á föstudaginn átti ég
200 kr.- í klinki... Í dag, sunnudag, á ég 5000 kr.- eftir að hafa
eitt 1000 kr.- í bensín, keypt mér pizzu og gos, keypt mér bounty,
keypt mér inniegn fyrir 500 kr.- og ekki eitt neitt meira... En nú
spyr sig einhver? Hvað gerðist? Vann hann í lottói? Nei!!! Fann
hann pening? Nei!!!
Pétur fór í spilakassa... Kannski ekki sniðugt og allt það en mér
finnst það sniðugt í dag... 5000 kr.- krónur og ég er fær í flestan
sjó.. Þetta er rosalegt og ég er allavega glaður að eiga þennan
pening því nú get ég sparað kortaeyðsluna næstu daga... En nóg af
þessu rugli.. Ég bið ykkur vel að lifa...